Fitueyðing með Ultrasound
Svæði: Andlit - Háls - Líkami
- Brýtur niður fitufrumur á meðferðarsvæði.
- Varanlegur árangur með náttúrulegum hætti.
- Örugg og sársaukalaus meðferð.
Svæði: Andlit - Háls - Líkami
- Brýtur niður fitufrumur á meðferðarsvæði.
- Varanlegur árangur með náttúrulegum hætti.
- Örugg og sársaukalaus meðferð.
Fitueyðing Ultrasound er byltingarkennd húðmeðferð sem byggð er á nýjustu tækni á sviði náttúrulegrar fitueyðingar án skurðaðgerðar.
Accent Prime tæki frá Alma Lasers er notað í meðferðinni sem byggir á notkun ultrasound bylgja. Með þessari tækni er verið að valda titringi sem leiðir til þess að veikburða frumuveggir fitu frumnanna rofna sem eyðast í framhaldi úr líkamanum í gegnum sogæðakerfið. Frumuveggir annarra frumna líkamans eru mun sterkari og þola því titringinn án þess að skaðast.
Fitueyðing Ultrasound hentar öllum þeim sem eiga erfitt með að losna við fitu á afmörkuðum svæðum. Meðferðinn skilar varanlegum árangri sé heilbrigðum lífsstíl viðhaldið og hentar hún öllum aldurshópum og húðgerðum. Meðferðin er örugg, sársaukalaus ásamt því að hafa litlar sem engar aukaverkanir og er því hægt að fara td. í vinnu strax að meðferð lokinni.
Til þess að ná hámarks árangri þarf rakabúskapur líkamans að vera góður og því mikilvægt að huga vel að vatnsdrykkju bæði fyrir og eftir hverja meðferð.
Andlit, háls og undirhaka eru vinsæl svæði til þess að taka í Fitueyðingu Ultrasound og er undirhakan eitt af þeim svæðum sem algengast að sé til vandræða þrátt fyrir heilbrigðan lífsstíl.
Við mælum með að taka Húðþéttingu samhliða meðferðinni sé um mikla undirhöku að ræða til að koma í veg fyrir lausa húð á meðferðarsvæðinu.
Fitueyðingu Ultrasound má framkvæma hvar sem er á líkamanum. Vinsæl meðferðarsvæði til þess að taka eru upphandleggir, læri, bak og mjaðmir því þar virðist fitan oft eiga það til að festast þó svo að heilbrigðum lífsstíl sé haldið. Miðað er við að hvert meðferðarsvæði sé á stærð við A4 blað og mikið þyngdartap átt sér stað á skömmum tíma er gott að koma í Húðþéttingu samhliða til að þétta og styrkja lausa húð.
Fjöldi meðferða: Til þess að ná sem bestum árangri má áætla að framkvæma þurfi meðferð í a.m.k. 4-6 skipti og að líða þarf að lágmarki tvær vikur á milli meðferða.
Árangur er að koma fram hægt og rólega í allt að 3 mánuði eftir hverja meðferð og til þess að ná sem bestum árangri er mikilvægt að heilbrigðum lífsstíl sé viðhaldið samhliða meðferðum.
Fyrir meðferð: Til þess að auka árangur meðferðar er mikilvægt að drekka vel af vatni, a.m.k. 2 lítra á dag, í 3 daga fyrir meðferð.
Eftir meðferð: Roði og bólga geta myndast og varað í allt að 1-2 daga en fer það eftir meðferðarsvæði. Mikilvægt er að drekka vel af vatni, a.m.k. 2 lítra á dag, í lágmarki 3 daga eftir meðferð sem og sleppa því að drekka áfengi í 5 daga eftir meðferð.
Mælt er með því að bera rakagefandi krem á svæðið tvisvar á dag í viku eftir meðferð ásamt því að forðast sund og líkamsrækt samdægurs. Mikilvægt er að nota sterka sólarvörn á í a.m.k. viku eftir meðferð og forðast sól eins og hægt er.
Til að ná fram sem mestri virkni er oft gott að blanda saman ólíkum meðferðum sem eru með mismunandi áherslur. Hægt er að leita ráðgjafar hjá sérfræðingum Húðfegrunar til að finna þær meðferðasamsetningar sem hentar þér best.
Dæmi um meðferð sem hentar alltaf vel samhliða Fitueyðingu Ultrasound er Húðþétting, en hún hraðar efnaskiptum í kjölfar Fitueyðingar og hjálpar húðinni að draga sig saman, þéttast og styrkjast.
Það eina sem þú þarft að gera er að skrá nafnið þitt og tölvupóstfang hér að neðan.
Með því að skrá þig ertu samþykk/ur því að fá tölvupóstsendingar frá okkur annað slagið.
Það er auðvelt að afskrá sig af þeim lista.