Húðþétting er RF meðferð sem vinnur á slappaðri húð og appelsínuhúð með því að örva kollagenframleiðslu og styrkja húðina án skurðaðgerðar. Meðferðin hentar vel fyrir maga, læri, handleggi, háls og önnur svæði þar sem húðin hefur misst þéttleika.
Við bjóðum uppá 30% afslátt ef greitt er fyrir 4 skipti, fullkomið tækifæri til að ná enn betri og varanlegri árangri.
Magasvæði – Læri – Rass – Upphandleggir – Andlit – Háls


Húðþétting er öflugasta og áhrifaríkasta meðferðin sem býðst á markaðnum í dag til þess að byggja upp og þétta slappa húð sem og vinna burt appelsínuhúð.
Accent Prime tæki frá Alma Lasers er notað í meðferðinni sem byggir á öflugri radiofrequency tækni. Tækið hefur það fram yfir önnur sambærileg að skila hraðari, dýpri og samfelldari hitun án þess að valda sársauka. Radiofrequency bylgjurnar frá tækinu koma vatnssameindum í húðinni á hreyfingu og skapa þannig núning á milli þeirra. Núningurinn skapar hita í vefjum líkamans og í ljósi þess hve stór hluti húðarinnar samanstendur af vatni ná vefir að draga sig saman og örva framleiðslu kollagens.
Til þess að ná sem bestum árangri þarf rakabúskapur líkamans að vera góður og því mikilvægt að huga vel að vatnsdrykkju bæði fyrir og eftir hverja meðferð. Meðferðin er örugg og sársaukalaus og hentar hún öllum húðgerðum og aldurshópum.
Húðþétting er þróuð sérstaklega til að styrkja og þétta slappa húð, hvort sem er vegna aldurs, þyngdartaps eða meðgöngu. Meðferðin vinnur djúpt niður í undirlag húðarinnar þar sem hún hjálpar vefjum að draga sig saman og örva kollagen framleiðslu sem skilar sér svo í þéttari, stinnari og sterkari húð.


Með Húðþéttingu er einnig verið að draga úr ásýnd appelsínuhúðar þar sem verið er að örva sogæðakerfið, hraða efnaskiptum og hjálpa vefjum húðarinnar að draga sig saman. Þessir þættir vinna saman að því að gefa húðinni sléttari og mýkri áferð.
Kollagen er eitt mikilvægasta uppbyggingar prótein líkamans og með hækkandi aldri fer framleiðsla þess að hægja á sér og kjölfarið fer húðin að slappast. Húðþétting bæði fyrirbyggir og vinnur til baka öldrun húðarinnar með því að hjálpa henni að viðhalda kollagen framleiðslu sinni.
Kollagen er eitt mikilvægasta uppbyggingar prótein líkamans og með hækkandi aldri fer framleiðsla þess að hægja á sér og kjölfarið fer húðin að slappast. Húðþétting bæði fyrirbyggir og vinnur til baka öldrun húðarinnar með því að hjálpa henni að viðhalda kollagen framleiðslu sinni.


Með Húðþéttingu er verið að tryggja uppbyggingu djúpt í undirlagi húðar og þannig hjálpa henni að endurnýja sig sem skilar sér í fallegri áferð og jafnari húðtón. Meðferðin mildar einnig ásýnd húðslita og öra samhliða því að þétta húðina og hentar því vel á magasvæði í kjölfar meðgöngu.
Til að ná fram sem mestri virkni er gott að blanda saman ólíkum meðferðum með mismunandi áherslur. Hægt er að leita ráðgjafar hjá sérfræðingum Húðfegrunar til að finna þær meðferðasamsetningar sem henta þinni húð best.
Dæmi um meðferðir sem henta vel samhliða Húðþéttingu eru t.d. Fitueyðing Ultrasound þegar um er að ræða líkama eða háls og Hyaluronic Booster þegar um er að ræða andlit.


Til þess að ná sem bestum árangri þarf oftast 4–6 meðferðir og mælt er með að líði að minnsta kosti tvær vikur á milli meðferða.
Árangur kemur fram smám saman í allt að 3 mánuði eftir hverja meðferð og mikilvægt er að viðhalda heilbrigðum lífsstíl samhliða meðferðunum til að hámarka árangur.
Til að auka árangur meðferðar er mikilvægt að drekka að minnsta kosti 2 lítra af vatni á dag í 3 daga fyrir meðferð.
Eftir meðferð geta roði og bólga myndast í 1–2 daga, fer eftir meðferðarsvæði. Mikilvægt er að drekka vel af vatni fyrstu dagana eftir meðferð.
Mælt er með að bera rakagefandi krem á meðferðarsvæðið tvisvar á dag í viku eftir meðferð og forðast sund og líkamsrækt samdægurs. Einnig er mikilvægt að nota sterka sólarvörn og forðast mikla sól fyrstu vikuna eftir meðferð.


Samsetning þessarra meðferða hentar vel þeim sem vilja gefa þreyttri húð sem byrjuð er að slappast þéttingu, raka og ljóma. Meðferðirnar eru báðar að örva kollagenmyndun í mismunandi lögum húðarinnar, Húðþétting dýpra niður í undirlagi húðar og Hyaluronic Booster í efri lögum hennar. Alhliða þétting næst því til lengri og skemmri tíma. Samhliða aukinni þéttingu gefur Hyaluronic Booster, sem er mesotherapy meðferð, húðinni raka og ljóma og nærir hana með ýmsum steinefnum og amínósýrum.


.png)

Ertu með spurningar áður en þú bókar húðþéttingu eða líkamsmótun?
Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.
Þú getur haft samband hvenær sem er í gegnum bokanir@hudfegrun.is


