Húðslípun – Djúphreinsun, húðendurnýjun og jafnari húðáferð

Húðslípun er áhrifarík húðmeðferð sem fjarlægir dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi, hreinsar svitaholur og örvar náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Meðferðin bætir húðáferð, jafnar húðtón, vinnur gegn fílapenslum og fínum línum og veitir húðinni mýkt, ljóma og ferskara yfirbragð. Hún hentar flestum húðgerðum og bæði yngri og eldri húð.

Andlit - Háls - Bringa - Hendur - Fætur - Bak

Nærmynd af konu sem fær húðslípun hjá Húðfegrun í Reykjavík. Hjúkrunarfræðingur framkvæmir örugga og áhrifaríka meðferð sem hreinsar og endurnýjar húðina með nýjustu tækni. Bókaðu faglega húðmeðferð í dag.
Við erum opin núna (9-17)
Nærmynd af pönnu í húðslípun hjá Húðfegrun. Húðin endurnýjast samstundis og fær bjartara yfirbragð. Meðferðin er framkvæmd af hjúkrunarfræðingi með nýjustu tækni. Bókaðu meðferð í klínísku umhverfi í Reykjavík.

Hvernig virkar Húðslípun?

Kristals og Demants Húðslípun er áhrifarík alhliða húðmeðferð, framkvæmd með Silk Peel húðslípunartæki. í meðferðinni er tvíþættri tækni er beitt, grófslípun með kristalsögnum og fín slípun með demants stúti.

Meðferðin vinnur vel á ysta lagi húðar þar sem verið er að fjarlægja dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi sem situr í svitaholum, örva blóðflæði og koma af stað endurnýjunarferli húðfrumna sem hjálpar húð að hreinsa og endurnýja sig.

Meðferðin hentar öllum aldurshópum og húðgerðum þar sem hún bæði yngri húð að hreinsa sig og viðhalda sér enn þéttir og styrkir eldri húð sem farin er að þynnast.

Ekki er ráðlagt að koma í Húðslípun ef sýktar bólur (e. active acne) eru til staðar og mælt er með að ráðfæra sig við meðferðaraðila áður en hafið er meðferð sértu á bólulyfjum.

Helstu kostir Húðslípunar

Með Húðslípun er verið að fjarlægja dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi sem situr fast í svitaholum og fínum línum. Meðferðin vinnur vel á bólum og fílapennslum ásamt því að koma jafnvægi á olíuframleiðslu, þétta opnar svitaholur, jafna áferð húðar og húðtón ásamt því að milda ásýnd á grunnum bóluörum.

Með meðferðinni er verið að örva blóðflæði og kollagen framleiðslu húðar sem skilar sér í þéttari og stinnari húð, ásamt því að ásýnd fínna lína verður minni. Strax eftir meðferð fær húðin aukin ljóma ásamt því að vera þéttari, mýkri og sléttari ásamt því að vera móttækilegri fyrir virkum efnum í kremum sem borin eru á andlitið.

Hjúkrunarfræðingar hjá Húðfegrun í Reykjavík ræða saman á milli húðslípunarmeðferða í faglegu og hlýlegu umhverfi.

Ávinningur Húðslípunar

  • Fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðar
  • Fjarlægir óhreinandi
  • Þéttir opnar svitaholur
  • Vinnur vel á bólum og fílapennslum
  • Vinnur stíflum í húð þ.m.t mile kornum
  • Jafnar áferð og húðtón
  • Mildar grunn ör og fínar línur
  • Mýkir og sléttir húð
  • Styrkir og stinnir húð
  • Mildar litabreytingar

Árangur og meðferðaráætlun

Árangur meðferðar: Til að ná sem bestum árangri er yfirleitt mælt með 2–6 meðferðum, allt eftir húðvanda og markmiðum meðferðar. Til að fríska upp á heilbrigða húð næst oft góður árangur eftir eina meðferð. Til að viðhalda heilbrigði húðar og árangri er mælt með viðhaldsmeðferð á 1–2 mánaða fresti.

Fjöldi meðferða: Til að vinna á óhreinindum eða öðrum húðvandamálum er yfirleitt mælt með 4–6 meðferðum með 1–2 vikna millibili. Sé húð mjög óhrein eða örótt getur þurft að minnsta kosti 6 meðferðir með um 3 vikna millibili og síðan viðhaldsmeðferð á nokkurra mánaða fresti. Alltaf þarf að líða að minnsta kosti ein vika á milli meðferða.

Móttaka Húðfegrunar í Reykjavík þar sem boðið er upp á faglegar húðslípunarmeðferðir og persónulega ráðgjöf.
Húðslípun framkvæmd hjá Húðfegrun í Reykjavík sem hreinsar húðina, fjarlægir dauðar húðfrumur og bætir húðáferð og ljóma.

Fyrir og eftir Húðslípun

Fyrir meðferð: Mælt er með að raka skegg fyrir meðferð ef við á.

Eftir meðferð: Í flestum tilfellum kemur aðeins fram vægur hiti og roði samdægurs. Hjá sumum getur húðin verið þurr fyrstu dagana og því er mikilvægt að nota gott rakakrem tvisvar á dag í að minnsta kosti viku eftir meðferð. Við mjög viðkvæma húð geta myndast smávægilegir marpunktar sem hverfa yfirleitt á nokkrum dögum.

Húðin er viðkvæmari fyrir sól fyrstu vikuna eftir meðferð. Mælt er með að nota sólarvörn með háum varnarstuðli, forðast beina sól eins og kostur er og sleppa líkamsrækt og sundi fyrsta sólarhringinn.

Fyrir og eftir myndir

Mynd sýnir nef fyrir og eftir húðslípun hjá Húðfegrun. Svitaholur hafa minnkað og húðin er hrein og slétt. Nýjustu húðmeðferðartækni tryggir áberandi árangur – bókaðu meðferð í Reykjavík.
Nærmynd af nefi karls fyrir og eftir húðslípun. Húðin er sýnilega hreinni, svitaholur minna áberandi eftir aðeins eina meðferð. Bókaðu faglega húðmeðferð á klíníku Húðfegrunar í Reykjavík.
Mynd sýnir árangur eftir húðslípun hjá Húðfegrun. Roði og ójöfnur hafa minnkað og húðin fær sléttari, frískari áferð. Meðferð með nýjustu tækni – bókaðu tíma hjá sérfræðingum í Reykjavík.

Hafðu samband varðandi Húðslípun

Ertu með spurningar áður en þú bókar Húðslípun eða vilt fá ráðgjöf um hvort meðferðin henti þinni húð?

Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.

Þú getur haft samband hvenær sem er í gegnum bokanir@hudfegrun.is
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Hjá Húðfegrun leggjum við áherslu á persónulega ráðgjöf og meðferðir sem sniðnar eru að þínum þörfum. Við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina hvort sem þú hefur spurningar um húðmeðferðir, líkamsmótun eða bókanir. Með faglegri þjónustu og nútímalegri tækni leggjum við áherslu á öruggar meðferðir og náttúrulegan árangur.

Laser- og húðmeðferðir fyrir húðáferð